29.5.2008 | 10:57
Tölvuleikjum að kenna
Í morðhermum eins og GTA IV koma eiturlyf stundum fyrir og þar sem maðurinn var á bíl og það þurfti að skjóta á hann til að stöðva hann er augljóst að hann var undir áhrifum tölvuleikja.
Ætlar enginn að stöðva þessa ógn við þjóðfélagið!
Tekinn með 154 kg af kókaíni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.5.2008 | 22:59
Verra að vera hvít kona en svartur karlmaður?
Hillary fórnarlamd kynjamisréttis? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 22:56
Undarlegt að vernda framleiðendur meira en neytendur
Öll þau umfjöllun sem maður hefur séð um matvælafrumvarpið hamrar fram og til baka á því hversu hræðilegt þetta yrði fyrir íslenska matvælaframleiðendur því sala þeirra myndi minnka svo mikið við allann þennann influtta mat.
Það sem vantar yfirleitt aftan við er að salan myndi minnka af því fólk hefði aðgang að ódýrari og fjölbreyttari mat og að íslensk matvælaframleiðsla getur ekki keppt við erlendar afurðir á verði, jafnvel með landbúnaðarstyrkjum.
Maður hefði haldið að fjölmiðlar og ríkisstjórn fögnuðu lækkun á framfærslukostnaði eins og ástandið er.
Matvælafrumvarpi frestað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 22:50
Sjálfsagt að leyfa þeim að nota litaða olíu
Ég styð allt sem dregur úr kostnaði björgunarsveitanna án þess að rýra þjónustu þeirra. Undarlegt líka að vegagerðin ætlist til að þeir skipti um olíu á öllum bílunum þegar útkall kemur ef þeir vilja nota þá lituðu við útköll. Eða kannski var ekki hugsað svo langt?
Ekki það að Landsbjörg þarf að sjálfsögðu að fara eftir lögum ef þau segja annað.
Deilt um litaða olíu á björgunarsveitabílum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2008 | 17:00
"Aðeins" meiri ábyrgð
Það hefur víst aðeins meiri áhrif á þjóðfélagið hvort bankastjóri eru vaxinn sínu starfi eða hvort verkamaður er það.
Hef aldrei verið á móti háum launum þar sem hægt er að réttlæta þau með að sýna fram á ábyrgðina sem fólk þarf að bera og hæfileikana sem það þarf að hafa til að sinna starfinu. Ef hluthafar eru sáttir þá er ég það.
Sjöfaldar ævitekjur á einu ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.5.2008 | 18:06
Hverslags áróðurstrikk er nú þetta?
Ég sé ekki af hverju Íranar ættu að búast við að eitthvað komi þeim illa eftir þessar friðarviðræður, hvað þá svo illa að þeir ættu að vera í sjokki.
Ísraelar hafa sýnt það margoft að þeir gefa aldrei neitt eftir neinum svo þessar "friðarviðræður" verða sýndarmennska í besta falli og skrípaleikur í því versta. Veit ekki til þess að þeir eigi hönk upp í bakið á Sýrlendingum svo það má gera ráð fyrir að mest lítið breytist.
Þarna er eins og greinarhöfundar ætlist til þess að við trúm því að Íranar séu að verða hræddir og einangraðir. Kannski til þess að við metum það sem minni áhættu þegar "vinaþjóðir" okkar byrja að kasta sprengjunum á þá.
Ísraelar segja Írana í áfalli" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2008 | 17:47
Aðför við nektardans
Mér þykir leitt að sjá hvernig hinir og þessir stjórnmálamenn og aðrir opinberir starfsmenn hafa keppst um að bola þessum löglega iðnaði út úr landinu.
Ég skil fólk vel að hafa áhyggjur af mansali og vændi en það hefur aldrei verið sýnt fram á með sannanlegum hætti að það eigi sér stað í kringum þessa staði á Íslandi í teljandi mæli.
Á meðan þetta er löglegur hluti af skemmtanaiðnaðnum á Íslandi ber lögreglu og stjórnmálamönnum að setja sína eigin skoðun á nektardansi til hliðar og líta á þetta eins og hverja aðra þjónustugrein.
Sýslumanni ekki stætt á að synja nektarumsókn Goldfingers | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2008 | 20:55
Tók maðurinn ekki eftir neinu fyrr?
Samtök dæmd til að greiða starfsmanni laun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2008 | 08:43
Frekari upplýsingar á EVE-online.com
Reyndar bara á ensku, en við hljótum að ráða við það ;)
http://myeve.eve-online.com/devblog.asp?a=blog&bid=562
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)